Björg Pétursdóttir fæddist 17. desember árið 1875 á Birningsstöðum í Laxárdal en fluttist ung með foreldrum sínum að Ísólfsstöðum á Tjörnesi. Björg var þekkt fyrir ljóðagerð og talin hafa frjóa hugsun og lifandi tilfinningu. Ekki hlaut hún mikla menntun eins og títt var hér áður fyrr. Fáir skólar starfræktir og aðeins fyrir þá efnameiri. Björg var vel menntuð á því var enginn vafi. Þess bera ljóðin hennar til dæmis vitni. Björg var ein af stofnendum Verkakvennafélagsins Vonar í Þingeyjarsýslu og gengdi þar formennsku til nokkurra ára. En ljóðin hennar sem hún var kunn fyrir og heilla hvern þann sem les, litu ekki dagsins ljós í ljóðabók fyrr en löngu eftir hennar daga. Bókin „Tvennir tímar“ var gefin út af Stéttarfélagi Framsýnar sem hélt upp á 100 ára sögu og stofnun félagsins árið 2018.
Heimild: Tvennir tímar
Formálarnir eru tveir fyrri ritar Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar
Seinni formálann rita þau Birgir Þór Þórðarson og Björg Ragúels.
Björg lést árið 1953