Suðurland

Helga Sigurðardóttir 1896-1956

þann 25. júní 1896 fæddist Helga Sigurðardóttur frá Malarási, Hofnesi, Öræfum. Helga var skáldkonan sem skrifaði kvæðin sín á lausblöðunga og varðveitti í koddaveri, hún var skáldkonan sem bar virðingu fyrir réttindum kvenna, hún var skáldkonan sem þekkt var í sinni sveit fyrir hagmælsku, hún var skáldkonan sem hlaut litla sem enga menntun eins og …

Helga Sigurðardóttir 1896-1956 Read More »

Karítas Þorsteinsdóttir Sverrisson 1852-1928

Karítas Þorsteinsdóttir Sverrisson fæddist þennan dag 27. júlí árið 1852. Frá Króki Vestur-Skaftafellssýslu. Móðir Jóhannes Kjarvals listmálara. Segir fátt af henni fyrir utan að inn á ismús er örlítið fjallað um hana. https://www.ismus.is/…/uid-908d4667-e1cb-4395-9f3f…Þá hefur Helga Kress einnig fjallað um hana. Árið 1922 gaf hún út lítið kver með örfáum ljóðum ort í Ameríku Draumaljóð og …

Karítas Þorsteinsdóttir Sverrisson 1852-1928 Read More »

Margrét Jónsdóttir 1893-1971

Margrét Jónsdóttir 20. ágúst 1893-1971 frá Árbæ í Holtum, Rangárvallasýslu. Margrét var kennaramenntuð og var með heimakennslu upp í Borgarfirði og í Gullbringusýslu. Hún gaf út alls 6 ljóðabækur og hún samdi sögur og leikrit ásamt því að skrifa greinar. Margrét á hið fallega ljóð ,,Ísland er land þitt“ Heimild: ,,Stúlka“ 2001. Í formálsorðum bókarinnar …

Margrét Jónsdóttir 1893-1971 Read More »

Oddný Kristjánsdóttir 1911-2007

Oddný Kristjánsdóttir fædd á þessum degi árið 1911 á Minna-Mosfelli í Mosfellssveit en fluttist barn að aldri með foreldrum sínum til Hafnarfjarðar og síðan að Forsæti í Villingaholtshreppi. Maður Oddnýjar var Ásmundur Eiríksson bóndi í Ferjunesi og bjuggu þau þar frá árinu 1934. Hér úr ljóðabókin hennar Oddnýjar ,,Best eru kvöldin“ sem kom út árið …

Oddný Kristjánsdóttir 1911-2007 Read More »

Margrét Sveinsdóttir 1829-1926

Margréti Sveinsdóttir fæddist 16. september árið 1829 í Öræfasveit. Eftir hana liggur ein lítil ljóðabók þar sem hún kveður nokkur ljóðmæli undir heitinu ,, Draumur Guðrúnar Brandsdóttir. Í handrit merktu lsb 3930 8voMargréti varð nærri hundrað ára er hún lést árið 1926. Helga Kress hefur fjallað um hana og Skáld.is einnig.https://www.skald.is/produ…/margr%C3%A9t-sveinsd%C3%B3ttir 16https://baekur.is/bok/000233966/7/224/Skra_um_handritasofn

Guðrún Auðunsdóttir 1903-1994

Guðrún fæddist 23. september 1903 í Dalseli undir Eyjafjöllum og var dóttir hjónanna Auðuns Ingvarssonar og Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur. Þar ólst hún upp í hópi níu systkina. Maður hennar var Ólafur Sveinsson bóndi í Stóru-Mörk. Guðrún fékk ung áhuga á að setja saman vísu og var þuluformið henni hugleikið. Árið 1982 kom út ljóðabók eftir …

Guðrún Auðunsdóttir 1903-1994 Read More »

Ólöf Einarsdóttir 1869-1958

Í dag þann 12. október árið 1869 fæddist trúarskáldið Ólöf Einarsdóttir frá Steig í Mýrdal. Foreldrar hennar voru þau Einar Runólfsson og Arndís Eyjólfsdóttir. Í formála ljóðabókar hennar ,, Stjarnan í myrkri“ sem gefin var út af Fíladelfíu í Reykjavík árið 1951 ritar Ásmundur Eiríksson þessi fallegu orð um ljóðin hennar. ..Trúarljóð Ólafar, er hér …

Ólöf Einarsdóttir 1869-1958 Read More »

Guðrún Pálsdóttir 1815-1890

Guðrún Pálsdóttir frá Vestmannaeyjum var fædd 1815-1890 dóttir Páls skálda prests Jónssonar frá Kirkjubæ. Páll var talinn eitt af höfuðskáldum Vestmannaeyja.. Heimild: ,,Sögur og sagnir úr Vestmannaeyjum 2. Útgáfa árið 1966 eftir Jóhann Gunnar Ólafsson segir svo frá.: ,,Það mun vera leit á því héraði á Íslandi þar sem ekki eru hagyrðingar, sem kasta fram …

Guðrún Pálsdóttir 1815-1890 Read More »